Sýningar í Gallerí Klaustur
Í Gunnarshúsi eru fastar sýningar um rithöfundinn Gunnar Gunnarsson, líf hans og verk, og um sögu miðaldaklaustursins og fornleifarannsóknina sem fram fór 2002-2012. Tímabundnar sýningar eru settar upp, m.a. kringum páska og stundum á aðventunni. Þá er oft efnt til sumarsýninga af þjóðfræðilegum toga þar sem sótt er í smiðju austfirsks sagnaarfs.
Collette & Matthew - Dansverk Dans-videóverk Colette Krogols og Matthew Reeves sem þau unnu á Klaustri haustið 2012. |
26. ágúst 19. sept. |
|
Alexandra Vassilikian - ljósmyndir |
19. júlí 25. ágúst |
|
Guðný Marinósdóttir - Ferðalag Sýning Guðnýjar Marinósdóttur á verkum sem tengjast fyrri tíð á Héraði unnin með blandaðri tækni. |
22. júní 17. júlí |
|
Kristín Rut Eyjólfsdóttir - málverk 50 litríkir regndropar, abstrakt smámyndir á striga. |
11. júní 19. júní |
|
Joan Perlman - Rivers to the Sea Bandaríska listakonan Joan Perlman sýnir nokkur verk úr stærri seríu unnin með gouache á Yupo. |
18. maí 1. júní |
|
Sigurður Ingólfsson - Ég þakka
|
17. mars 12. maí. |
|
2011 |
||
Sigurjón Pétursson sýnir Aðventu á Fjöllum Svarthvítar vetrarmyndir teknar á söguslóðum Aðventu, skáldsögu Gunnars Gunnarssonar. Innblástur sóttur í ævintýri Fjalla-Bensa á Mývatnsöræfum. |
5. nóv. 11. des. |
|
Þóra Hrönn Njálsdóttir sýnir Ferðalanga á Fjöllum Ljósmyndir af nöfnum Íslendinga sem timburþilið í Sæluhúsinu við Jökulsá geymir sem gestabók ferðalanga síðustu 120 árin. |
5. nóv. 11. des. |
|
Skarphéðinn Þráinsson sýnir ljósmyndir. Skarphéðinn hefur frá bernsku haft mikinn áhuga á veiðimennsku og ferðalögum um náttúru Íslands. Hann er sjálfmenntaður áhugaljósmyndari og megin yrkisefni hans er landslag, eldgos og dýralíf. |
27. ágúst 2. október |
|
Kjartan Hallur sýnir pennateikningar. Þungamiðja sýningarinnar eru pennateikningar úr bókinni Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson sem út kom 2010 hjá Bjarti. Auk þess eru til sýnis nokkrar eldri myndir. |
1.- 24. ágúst | |
Guðjón Bragi Stefánsson og Edda Rós Jónsdóttir sýna teiknimynd. The Night Cap er unnin upp úr íslensku þjóðsögunni Draugshúfan. Myndin er án tals til þess að brjóta niður tungumálamúra.
Notaðar eru teikningar, tölvugrafík, ljósmyndir og myndbandsklippur til að skapa heim verksins.
|
1.- 27. júlí | |
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir sýnir myndverk. Verkin eru unnin í tengslum við myndskreytingu á bókinni Hrafna-Flóki eftir norsku skáldkonuna Sylvien Vatle. |
2.- 29. júní | |
Katrín Jóhannesdóttir - Katý - sýnir ýmsar hannyrðir. Fjölbreytt sýning á hannyrðum Katýar, m.a. hin ýmsu útsaumsspor, hekl, orkering, vefnaður, harðangurssaumur, hand- og vélprjón. |
17. apríl 10. maí | |
Sigrún Björgvinsdóttir sýnir verk úr þæfðri ull. Verkin eru innblásin af íslenskri náttúru, m.a. eldgosum og ísjökum. |
21. apríl 15. maí |
2010 |
|||
Megan Harrold & Charlie Rauh sýna dans- og tónverk. Verkið er fyrir dansara og gítar og byggir á sýnum nunnunnar Hildegard von Bingen (1098-1179). |
25. september | ||
Stuart Richardson, GLAMOUR (Karna&Sebastian), Þórunn Gréta og Jane Ade sýna ljósmyndir og vídeóverk. Hópur listamanna með austfirska tengingu. Sýningin er í myndum og hljóði og kallast KVIK myndasýning. |
27. ágúst - 26. sept. | ||
Anna Sigríður Sigurjónsdóttir sýnir skúlptúra.
Anna Sigríður dvaldi í gestaíbúðinni Klaustrinu í janúar 2009 og sótti innblástur til staðarins og fornleifauppgraftrarins. Skúlptúrarnir eru unnir úr járni og grjóti.
|
30. júlí - 26. ágúst | ||
Jónína Guðnadóttir sýnir verk úr leir og tré. Á sýningunni eru skepnur eða verur tengdar lofti, láði og legi. Sýningin er unnin sérstaklega fyrir rýmið enda Jónína þekkt fyrir að fást meira við stærri verk. Eftir hana er m.a. verkið Hringiða við aðalstíflu Kárahnjúkavirkjunar. |
2. - 28. júlí | ||
Inga Dorosz sýnir myndbandsverk.
Á sýningunni eru myndbandsverk um vatn og fyrst og fremst fallvötn. Sýnt er hvað vatnið flytur, hvað fer út í vatnið og hverju vatnið skilar til baka.
|
12. - 28. júní | ||
Jovanna Tosello sýnir ljósmyndir.
Sýningin kallast Partial Memory.
|
18. maí - 6. júní | ||
Masaki Umetsu sýnir innsetningu.
Masaki Umetsu er japanskur listamaður sem dvelur nú í gestaíbúðinni Klaustrinu. Hann hefur getið sér gott orð víða um lönd fyrir innsetningar sínar þar sem hann vinnur með ljós og gras sem vex upp af fræjum í formgerðu landslagi. Sérstaklega áhugavert verður að sjá hvernig verkið mun breytast dag frá degi þegar grasið fer að vaxa.
|
22. apríl - 16. maí | ||
Nemendur á listnámsbraut ME sýna teikningar.
Sýningin tengist páskahátíðinni og fjallar um krossleiðina, via crucis. Nemendurnir taka fyrir í verkum sínum þá fjórtán staði í píslargöngu Krists sem liggja að krossfestingu og til grafar.
|
28. mars - 11. apríl | ||
2009 |
|||
Hanna Christel Sigurkarlsdóttir og Þórunn Eymundardóttir sýna skúlptúr.
Verkið sem þær Hanna og Þórunn sýna er skúlptúr unninn með blandaðri tækni. Verkið er gert sérstaklega fyrir rýmið.
|
28. ágúst - 27. sept. | ||
Piotr Nathan
Skýrslubrot af verkstæði tímavélar kallast sýning þessa þýska listamanns sem dvelur um þessar mundir í Klaustrinu.
|
10. - 26. ágúst | ||
Sandra Mjöll Jónsdóttir sýnir ljósmyndir.
Sandra Mjöll er fædd og uppalin á Fljótsdalshéraði og nýlega útskrifuð með M.A. gráðu ú ljósmyndun frá University of the Arts í London. Sýningin kallast Aðlögun og er framhald af útskriftarverkefni hennar.
|
5. júlí - 7. ágúst | ||
Rae Bridgman sýnir teikningar.
Rae er kanadísk listakona, rithöfundur og mannfræðingur. Hún er þekktust fyrir fantasíubækur fyrir unglinga og myndskreytir þær einnig.
|
31. maí - 20. júní | ||
2008 |
|||
Lasse Sörensen sýnir teikningar.
Lasse Sörensen kemur frá Færeyjum og hefur m.a. stundað hreindýraveiðar á Fljótsdalsheiði. Hann teiknar og málar myndir náttúrumyndir og er þekktur fyrir fuglateikningar. |
1. - 30. september | ||
Katerina Mistal sýnir ljósmyndir. Katarina hin sænska dvaldist í Klaustrinu sumarið 2007. Hún sýnir ljósmyndaverk sem unnin voru í kjölfar dvalarinnar
|
2. - 30. ágúst | ||
Anne Pesce
|
5. - 31. júlí | ||
Séverine Thévenet sýnir ljósmyndir.
|
6. júní - 3. júlí | ||
Elva Hreiðarsdóttir sýnir grafíkverk. Elva sýnir grafíkverk á sýningu sem hún kallar Stiklur. |
1. maí - 4. júní | ||
2007 |
|||
Timo Rytkönen sýnir málverk.
Timo hefur undanfarið dvalið í gestaíbúðinni Klaustrinu. Tilvalið þótti að halda sýningu á nokkrum mynda hans á Dögum myrkurs. Myndirnar eru blanda af olíu- og vatnslitum á lérefti.
|
10. - 18. nóvember | ||
Claudia Schindler sýnir teikningar.
Claudia heur dvalið í gestaíbúðinni nú á haustdögum. Við lok dvalarinnar heldur hún hér litla sýningu með nokkrum myndum og teikningum sem hún hefur unnið á dvalartímanum.
|
29. - 30. sept. | ||
Ove Aalo sýnir ljósmyndir.
Myndirnar tók hann meðan hann dvaldi í gestaíbúðinni Klaustrinu haustið 2006. Mest er um að ræða landslagsmyndir en einnig portrett af fljótsdælsku sauðfé.
|
25. ágúst - 15. sept. | ||
Svala Ólafsdóttir sýnir ljósmyndir.
Heiti sýningarinnar er Á meðan hún sefur og á henni eru fjögur samsett ljósmyndaverk sem sækja innblástur í móðurástina og m.a. í verk Gunnars Gunnarssonar.
|
27. júlí - 16. ágúst | ||
Ingiberg Magnússon sýnir grafíkverk.
Sýning ber heitið Að heiman og heim aftur. Ingiberg ólst upp á Fljótsdalshéraði og sækir myndefnið á þessari sýningu mikið til æskuslóðanna. Á sýningunni eru 14 verk, unnin með þurrpastellitum á pappír.
|
1. - 21. júlí | ||
Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir sýnir málverk.
Á sýningunni er olíumálverk unnin að mestu undanfarna tólf mánuði undir áhrifum frá dvöl Hrafnhildar í Klaustrinu sl. sumar. Myndefnið er fjölbreytt: grónar hlíðar, öræfi, kræklóttir fúaraftar og hraunsprungur.
|
1. - 29. júní | ||
Ruth Boerefijn sýnir grafíkverk.
Boerefijn dvaldist í gestaíbúðinni Klaustrinu í ágúst 2005 og sýnir nú brot þeim verkum sem hún vann þá og í kjölfar Íslandsdvalarinnar. Verkin eru unnin með blandaðri tækni en sýninguna kallar hún Interior Landscapes.
|
5. - 27. maí | ||
2006 |
|||
Hrönn Axelsdóttir sýnir ljósmyndir.
|
|
||
Kamilla Talbot sýnir vantslitamyndir.
|
12. júlí - 4. ágúst | ||
Agnieszka Sosnowska sýnir ljósmyndir. Agnieszka er frá Póllandi en lærði ljósmyndun í Bandaríkjunum. Hún býr nú á Fljótsdalshéraði og sýning hennar kallast Stígurinn heim |
10. júní - 10. júlí | ||
Svandís Egilsdóttir sýnir olíumálverk. Svandís sýnir olíumálverk og kallar sýninguna Ó-HREIN-DÝR. |
6. maí - 9. júní |
2005 |
||
Ólöf Björk Bragadóttir og Sigurður Ingólfsson Innsetning út frá Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. |
25. mars - 5. maí | |
7. maí - 16. júní | ||
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir |
17. júní - 14. júlí | |
Giuseppe Venturini Giuseppe er forvörður og hefur starfað síðustu sumur við forvörslu fornminja hjá Skriðuklaustursrannsóknum. Hann er jafnframt mjög fær teiknari og mun sýna teikningar af landslagi í Fljótsdal |
15. júlí - 14. ágúst | |
Helga Erlendsdóttir Býr að Árnanesi í Hornafirði og rekur þar gallerí og ferðaþjónustu. Hún málar landslag með olíu og mun sýna slík verk. |
15. ágúst - 18. sept. | |
2004 |
||
Skáldið Sjón Rithöfundurinn Sigurjón Birgir Sigurðsson er betur þekktur sem skáldið Sjón. Á sýningu hans kennir ýmissa grasa. |
9. maí - 23. maí | |
29. maí - 10. júní | ||
Kristinn G. Harðarson |
11. júní - 30. júní | |
Petra Gimmi Petra er þýsk listakona sem hefur m.a. dvalist á Íslandi við listsköpun sína. Hún sýnir 15 verk unnin í olíu, vatnsliti og með blandaðri tækni. |
1. júlí - 14. júlí | |
Pétur Behrens Sýning Péturs ber heitið "Líthógrafíur og gæðingar" og á henni eru vatnslitamyndir og steinþrykk. |
14. júlí - 2. ágúst | |
Pjetur Stefánsson Sýning Pjeturs Stefánssonar heitir "Tourist artist - traveling light". |
3. ágúst - 21. ágúst | |
Thomas Hawson Sýning á borði og stólum úr eik og áli sem unnið er í samvinnu við sex norræna handverks- og listiðnaðarmenn. |
22. ágúst - 31. ágúst | |
Rüdiger og Gerlinde Heins Sýning á þýskum ljóðum í tíbetskum tönku stíl og máluðum myndum við þær. |
3.- 19. sept. | |
Ellert Grétarsson Ellert sýnir tölvuunnar myndir sem sumar hverjar hafa vakið athygli víða um heim í vefgalleríum. |
9.- 24. október | |
2003 |
||
Sýning á verkum eftir Mariettu Maissen. Marietta stundaði listnám við Myndlistar- og handíðaskóla Íslands en býr nú að Höskuldsstöðum í Breiðdal. |
29. maí - 14. júní | |
Videólist - Maximillian Moll
Maximillian er lærður myndlistarmaður frá Þýskalandi og hefur farið ótroðnar slóðir við gerð videóverka sinna. |
15. júní - 8. júlí | |
Inga Jónsdóttir með innsetningu um orku og tíma Inga Jónsdóttir býr á Höfn í Hornafirði og er flestum kunn fyrir frumleika og fersk efnistök í list sinni. |
9. - 28. júlí | |
Sólrún Friðriksdóttir sýnir textílverk Sólrún er frá Stöðvarfirði og hefur getið sér gott orð víða um heim fyrir falleg verk. |
30. júlí - 14. ágúst | |
Sigurður Stefán Jónsson sýnir ljósmyndir Sigurður dvaldist í Klaustrinu 2002 og ferðaðist þá vítt og breitt um Austurland í leit að góðu myndefni. Hluti afrakstursins er á sýningunni. |
15. - 24. ágúst | |
Pétur Thomsen sýnir ljósmyndir - Aðflutt landslag Pétur er lærður frá hinum virta ljósmyndaskóla í Arles í Frakklandi og kennir þar um þessar mundir. Sýning hans byggir á ljóði Sveins Yngva Egilssonar sem heitir Aðflutt landslag |
25. ágúst - 7. sept. | |
Alma Árnadóttir sýnir letur-verk Alma lauk námi í grafískri hönnun við Myndlistarskóla Akureyrar sl. vor og sýnir letur-verk. |
12. sept - 5. okt. | |
2002 |
||
Veflist að vori - Fríða S. Kristinsdóttir sýnir vefnað. Fríða er lærð í vefnaði og hefur kennt hann um árabil. Síðustu árin hefur hún unnið með ný efni í vefstólnum. |
20. - 28. apríl | |
Myndpör - Jón Guðmundsson sýnir ljósmyndir.
Jón er lærður tónlistarmaður og kennari en hefur fengist við ljósmyndun í frístundum sínum. |
18. maí - 13. júní
|
|
Raina Stebelsky sýnir teikningar og grafíkverk. Raina er kanadísk. Hún er listamaður og mannfræðingur og blandar þessu tvennu oft saman í listsköpun sinni. |
14. júní - 3. júlí | |
Anne Østergaard sýnir málverk unnin á Austurlandi. Anne er dönsk og hefur haldið fjölda sýninga. |
4. - 18. júlí | |
Ríkharður Valtingojer sýnir grafíkverk. Ríkharður er landsþekktur listamaður, búsettur á Stöðvarfirði en hefur undanfarin ár kennt grafíklist við Listaháskóla Íslands. |
19. júlí - 2. ágúst | |
Sjöfn Eggertsdóttir sýnir málverk. Sjöfn er starfandi myndlistarmaður á Héraði og hefur haldið fjölda sýninga. |
3. - 16. ágúst | |
Gréta Ósk Sigurðardóttir sýnir grafík. Gréta er starfandi myndlistarmaður á Héraði og hefur haldið fjölda sýninga. |
17. ágúst - 2. sept. | |
2001 |
||
Elísabet Stefánsdóttir og Margrét Ómarsdóttir sýna grafík.
Sýningin nefnist SKRIÐA og er liður í Hringferð myndlistarnema LHÍ.
|
23. maí - 20. júní | |
Ólöf Björk Bragadóttir sýnir ljósmyndir.
Á sýningunni eru ljósmyndir í lit, teknar á flóamarkaðinum í Montpellier í S-Frakklandi.
|
15. júní - 1. júlí | |
Arni Haraldsson sýnir ljósmyndir.
Arni er fæddur á Íslandi en flutti ungur til Kanada. Hann býr og starfar í Vancouver og kennir ljósmyndun við Emily Carr College of Art and Design.
|
3. júlí - 15. júlí | |
Pétur Behrens sýnir mannamyndir.
Á sýningunni eru tíu portrettmyndir unnar með kolum og vatnslitum.
|
17. júlí - 2. ágúst | |
Ólöf Birna Blöndal sýnir Fjöll og firnindi.
Ólöf Birna hefur um árabil unnið landslagsmyndir í olíupastel, jafnframt að mála olíumyndir og teikna og mála portret.
|
3. ágúst - 16. ágúst | |
Skarphéðinn G. Þórisson sýnir ljósmyndir.
Skarphéðinn er líffræðingur og sýnir hann nokkrar af þeim myndum sem hann hefur tekið við rannsóknir sínar á hreindýrum síðustu tvo áratugi.
|
18. ágúst - 9. september |