Sumarið komið í dalinn

Sumarið er komið í dalinn. Mispillinn við Gunnarshús farinn að grænka og fuglasöngur fyllir loftið. Í dag er 1. maí og það þýðir að sumaropnun er hafin. Fram í miðjan september verður opið daglega á Skriðuklaustri. Í maí er opið kl. 12-17 en síðan lengist opnunartíminn 1. júní í kl. 10-18. Sýningin Flæði eftir Lóu er í gallerí Klaustri og í stássstofu er Lagarfljótsormurinn á kreiki. Klausturkaffi býður upp á veitingar í hádegi og kaffi og um helgar er hádegis- og kaffihlaðborð.

Glæsileg ljósmyndabók

Út er komin hjá Sölku ljósmyndabókin Aðventa á Fjöllum eftir Sigurjón Pétursson og Þóru Hrönn Njálsdóttur. Bókin er afrakstur ljósmyndaverkefnis þeirra hjóna sem var innblásið af Aðventu Gunnars Gunnarssonar. Í bókinni eru óviðjafnanlegar vetrarmyndir af söguslóðum Aðventu og myndir úr Sæluhúsinu við Jökulsá sem Fjalla-Bensi gisti í á ferðum sínum um Mývatnsöræfin. Ljósmyndirnar voru fyrst sýndar á sýningu á Skriðuklaustri í nóvember og desember en eru nú á sýningu í Þjóðminjasafninu sem var opnuð 21. apríl sl. Salka gefur bókina út á íslensku, ensku og þýsku. Sjá nánar á heimasíðu Sölku og góða umfjöllun í Kiljunni 18. apríl. Gunnarsstofnun og Menningarráð Austurlands studdu ljósmyndaverkefnið ásamt Þjóðminjasafninu.

Opið á sunnudögum í apríl

Opið verður á Skriðuklaustri alla sunnudaga í apríl kl. 12-17. Sumardaginn fyrsta verður einnig opið á sama tíma. Klausturkaffi býður upp á hádegis- og kaffihlaðborð. Í galleríi er hægt að skoða sýningu Lóu sem nefnist Flæði. Á efri hæðinni er síðan sýning um Lagarfljótsormurinn ásamt föstum sýningum um Gunnar Gunnarsson og fornleifarnar.

Flæði og Lagarfljótsormurinn

Tvær sýningar verða opnaðar á Skriðuklaustri á pálmasunnudag, 1. apríl. Annars vegar er það sýningin Flæði í gallerí Klaustri sem er unnin af Ólöfu Björk Bragadóttur (Lóa) í samvinnu við Sigurð Ingólfsson ljóðskáld. Lagarfljótið og litaspil þess er uppspretta hugmynda að verkinu Flæði og þeim málverkum sem Lóa sýnir.  Hin sýningin er um Lagarfljótsorminn og var áður sett upp sumarið 2007 en gengur nú í endurnýjun lífdaga í kjölfar heimsfrægðar ormsins í netheimum. Opið verður um páskana á Skriðuklaustri á sýningar og í hádegisverð og kaffihlaðborð hjá Klausturkaffi sem hér segir: Kl. 12-17 á pálmasunnudag, föstudaginn langa, laugardaginn 7. apríl og á annan í páskum. Lokað á skírdag og páskadag. Árleg píslarganga Gunnarsstofnunar í samvinnu við prestana á Héraði verður frá Valþjófsstaðarkirkju í Skriðuklaustur á föstudaginn langa kl. 11. Snæfellsstofa verður einnig opin laugardaginn 7. apríl og á annan í páskum.

Sjöundá - nýtt leikverk

Leikhópurinn Aldrei óstelandi frumsýndi sl. föstudag nýtt leikverk sem m.a. byggir á Svartfugli Gunnars Gunnarssonar. Verkið ber heitið Sjöundá og er sýnt í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu. Leikendur eru stofnendur leikhópsins, þau Sveinn Ólafur Gunnarsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson og Harpa Arnardóttir. Leikstjóri er Marta Nordal.

Hafðu samband

  • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Komdu í heimsókn

Fylgdu okkur