17.október hefst vetrarlokun og er þá aðeins opið við ákveðin tilefni og viðburði sem eru auglýstir sérstaklega.
Vetrarlokun hefst í Klausturkaffi 17.október og eftir þanni tíma er opið eftir samkoimulagi og við viðburði.
Næstu viðburðir:
Öxin, Agnes og Friðrik: Sagnastund með Magnúsi Ólafssyni 23.nóv kl 14:00
Rithöfundalestin 2024: 24.nóv kl 13:30 (verður líka í streymi)
Grýlugleði 2024: 1.des kl 14:00
Vera Illugadóttir les Aðventu í skrifstofu skáldsins. 8.des kl 13:30
Í tengslum við árvissa jólaviðburði á Skriðuklaustri, þá Klausturkaffivið uppá jólahádegis- og jólakökuhlaðborð 3 helgar fyrir
jól!Jóla- hádegishlaðborð verður 23., 24. og 30. nóv. og 1., 7. og 8. desember! Frá kl. 12-14 alla dagana, verð kr. 7.500.- börn 6-12 ára boga 1/2 verð, 5 ára og yngri borða frítt! Borðabókanir nauðsynlegar!
Jóla- kökuhlaðborðin verða í boði sunnudagana 24. nóv., 1. og 8. des! Kr. 3.500.-, og ódýrara fyrir börn!
Nánari upplýsingar og borðapantanir hjá This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.., á messinger og í síma 471-2992/899-8169!
* Börn 16 ára og yngri í fylgd með fullorðnum FRÍTT
Skriðuklaustur er sögustaður með rústum miðaldaklausturs frá 16. öld. Minjar klaustursins voru grafnar upp á árunum 2002-2012 í einni umfangsmestu fornleifarannsókn síðari ára. Á Skriðuklaustri stendur líka herragarðshúsið sem rithöfundurinn Gunnar Gunnarsson byggði árið 1939 þegar hann sneri heim eftir 30 ára dvöl í Danmörku. Í Gunnarshúsi er sýning um klaustrið og safn um Gunnar skáld með persónulegri leiðsögn fyrir gesti. Þar er jafnframt hið rómaða veitingahús Klausturkaffi.
Klausturkaffi heitir veitingastaður á neðri hæð Gunnarshúss á Skriðuklaustri. Þar er íslensk matargerð í hávegum höfð og lögð áhersla á að nota hráefni svæðisins, s.s. lambakjöt, hreindýrakjöt, hrútaber og lerkisveppi. Allar kökur og allt brauð er heimabakað.
Á árunum 2002-2012 voru grafnar voru upp rústir Ágústínusarklausturs sem starfaði frá 1493 til siðaskipta 1550. Skriðuklaustur var síðasta klaustrið sem stofnað var í kaþólskum sið og hið eina á Austurlandi. Klaustrið var hæli fyrir sjúka og fátæka og þar var starfrækt sjúkrahús og skóli. Minjasvæðið er opið öllum allt árið.
Gunnarsstofnun rekur gestaíbúð fyrir lista- og fræðimenn að Skriðuklaustri. Íbúðin kallast Klaustrið og hefur tekið á móti góðum gestum allt frá 1989 sem hafa dvalið þar og unnið að völdum verkefnum. Íbúðin er tveggja herbergja (svefnherbergi, stofa, eldhús og bað) á efri hæð Gunnarshúss. Rithöfundar, fræðimenn, tónskáld, myndlistarmenn, tónlistarmenn, dansarar og aðrir listamenn geta sótt um 3-6 vikna dvöl í gestaíbúðinni.
Það er eitt og annað fyrir börnin að sýsla á Skriðuklaustri. Á milli Snæfellsstofu og Gunnarshús er lítið en skemmtileg völundarhús úr íslenskum viði og á leiðinni þangað má prófa leikinn „bannað að snerta jörðina“. Framan við Gunnarshús er stór og góður sandkassi fyrir yngstu kynslóðina skammt frá útiborðum Klausturkaffis. Inni við er síðan dótaherbergi á neðri hæð hússins. Og snjallir krakkar geta sótt sér smáforrit sem breyta fræðslu um miðaldaklaustrið í spennandi fjársjóðsleit.
Gestastofa fyrir Vatnajökulsþjóðgarð var opnuð í nágrenni Gunnarshúss á Skriðuklaustrið árið 2010. Húsið fékk nafnið Snæfellsstofa og er fyrsta íslenska húsið sem fær umhverfisvottunina BREEAM. Í Snæfellsstofu er upplýsingagjöf til ferðamanna og minjagripaverslun en jafnframt gagnvirk sýning fyrir börn og fullorðna um náttúru Vatnajökulsþjóðgarðs. Á sumrin er boðið daglega upp á barnastundir með landvörðum.