SEEDS sjálfboðaliðar við frágang á minjasvæðinu

Skriðuklausturshátíð um helgina

Um næstu helgi, 18.-19. ágúst, verður Skriðuklausturshátíð í Fljótsdal. Tilefnið er ærið því að lokið er tíu ára rannsókn á rústum hins forna Ágústínusarklausturs sem þar stóð á 16. öld. Mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mun opna fullfrágengið minjasvæði á þessum tímamótum sem markast einnig af þeim 500 árum sem liðin eru frá því Stefán Jónsson Skálholtsbiskup vígði klausturkirkjuna. Guðsþjónusta verður í rústum kirkjunnar og þar mun biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, prédika. Um helgina kemur einnig út bók um rannsóknina á klaustrinu að Skriðu eftir dr. Steinunni Kristjánsdóttur og haldið verður opið málþing í Végarði í Fljótsdal.

Uppgreftri Ágústínusarklausturs á Skriðuklaustri í Fljótsdal sem starfrækt var 1493-1554 lauk síðasta sumar. Um er að ræða einhverja umfangsmestu fornleifarannsókn síðari ára en hún hófst árið 2002 með framlögum Kristnihátíðarsjóðs. Í ár hefur verið unnið að frágangi minjasvæðisins og sunnudaginn 19. ágúst nk. verður það opnað formlega af mennta- og menningarmálaráðherra. Í samráði við Fornleifavernd ríkisins hafa grunnform klausturbygginga og kirkju verið hlaðin upp og búið er að tyrfa veggi og umhverfi þannig að hægt er að feta í fótspor þeirra sem dvöldu í klaustrinu á 16. öld. Þá hefur verið komið fyrir útsýnispalli fyrir ofan svæðið með fræðsluskiltum.

Dagskrá hátíðarinnar er sem hér segir. Laugardaginn 18. ágúst verður opið málþing í Végarði kl. 13-16 þar sem dr. Steinunn Kristjánsdóttir, sem stýrt hefur rannsókninni frá upphafi, mun flytja erindi ásamt dr. Hjalta Hugasyni, dr. Vilborgu Auði Ísleifsdóttur, Hrönn Konráðsdóttur og Margréti Gestsdóttur. Málþingið er öllum opið og munu forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins og þjóðminjavörður sitja í pallborði með fyrirlesurum. Hér er hægt að sækja dagskrá málþingsins

Sunnudaginn 19. ágúst, sem jafnframt er Fljótsdalsdagur í Héraðshátíðinni Ormsteiti, hefst dagskrá með morgungöngu kl. 10 frá Víðivöllum í Skriðuklaustur í minningu Sesselju Þorsteinsdóttur sem gaf jörðina Skriðu undir klaustur. Eftir hádegi, kl. 13.30 verður síðan hátíðardagskrá á Skriðuklaustri þar sem mennta- og menningarmálaráðherra mun opna minjasvæðið og síðan verður guðsþjónusta við rústirnar og mun biskup Íslands prédika.

Hefðbundin dagskrá Fljótsdalsdags tekur síðan við hjá Gunnarshúsi með tónleikum Ásgeirs Trausta og Þristarleikum þar sem m.a. er keppt í rababarakasti og fjárdrætti.

Klausturkaffi býður að sjálfsögðu upp á hádegis- og kaffihlaðborð alla helgina og við minnum einnig á sýninguna Undir Klausturhæð í Gunnarshúsi um uppgröftinn, sem og Endurfundasýninguna á Minjasafni Austurlands þar sem sjá má marga gripi sem fundust við rannsóknina.

  • Created on .

Hafðu samband

  • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Komdu í heimsókn

Fylgdu okkur