Rithöfundalest(ur) 2022
Austfirskir höfundar fylla lestina í ár
Rithöfundar verða á ferð um Austurland 17. - 20. nóvember að kynna verk sín venju samkvæmt. Að þessu sinni verður Rithöfundalestin alfarið austfirsk þar sem allir höfundar eiga rætur eða eru búsettir á Austurlandi. Kjarna lestarinnar mynda fjórmenningarnir: Benný Sif Ísleifsdóttir með skáldsöguna Gratíana sem er framhald Hansdætra; Jónas Reynir Gunnarsson með skáldsöguna Kákasus-gerillinn; Smári Geirsson með stórvirkið Sögu Fáskrúðsfjarðar; og Ragnar Ingi Aðalsteinsson með þrjú verk, Líkið er fundið - sögur af Jökuldal, kvæðasafn systkinanna frá Heiðarseli og bók um Skáld-Rósu. Aðrir höfundar sem stíga um borð í lestina á mismunandi stöðum eru: Unnur Sveinsdóttir með barnabókina Skotti og sáttmálinn; Ásgeir Hvítaskáld með skáldsögu byggða á sönnum atburðum, Morðið í Naphorni; ; Jón Pálsson með glæpasöguna Skaðræði; Jón Knútur Ásmundsson með ljóðabókina Stím; Anna Karen Marinósdóttir með ljóðabókina Kannski verður allt í lagi; og Björn Ingvarsson með þýðingar á ljóðum Inúíta.
Upplestrarsamkomur Rithöfundalestarinnar verða sem hér segir:
- Fimmtudaginn 17. nóv. á Vopnafirði í Uss Bistro Kaupvangi kl. 20:30 - frítt inn
- Föstudaginn 18. nóv. í Skaftfelli Seyðisfirði kl. 19:00
- Laugardaginn 19. nóv. í Safnahúsinu í Neskaupstað kl. 14:00 - Frítt inn og Ungmennafélagið Egill Rauði býður upp á heitt kakó meðan á lestrinum stendur. Og í Löngubúð á Djúpavogi kl. 20:00. - frítt inn
- Lestarferðinni lýkur á Skriðuklaustri sunnudaginn 20. nóv. þar sem flestir ofangreindu höfundanna koma fram og fleiri austfirskar bækur verða kynntar á viðburði sem einnig verður streymt á netinu og hefst kl. 13:30.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Rithöfundalestin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar, Skaftfells, Menningarstofu Fjarðabyggðar, menningarsviðs Múlaþings og menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps.
Verkefnið nýtur stuðnings Uppbyggingarsjóðs Austurlands, Síldarvinnslunnar, Alcoa, Atlantsolíu, Brims, Forlagsins, Bílaleigu Akureyrar og Gistihússins á Egilsstöðum.
Allar upplýsingar um viðburðina er að finna á Facebook-síðum samtarfsaðilanna.