Restaurant
Klausturkaffi heitir veitingastaður á neðri hæð Gunnarshúss á Skriðuklaustri. Þar er íslensk matargerð í hávegum höfð og lögð áhersla á að nota hráefni svæðisins, s.s. lambakjöt, hreindýrakjöt, hrútaber og lerkisveppi. Allar kökur og allt brauð er heimabakað.
Á sumrin er boðið upp á hádegishlaðborð (kl. 12-14) og kaffihlaðborð (kl. 15-17) alla daga. Opið er á sama tíma og Gunnarshús er opið en utan opnunartíma árið um kring geta hópar pantað fjölbreyttar veitingar, t.d. hádegisverði, kaffiveitingar, smárétti og kvöldverði. (Sjá matseðla).
Klausturkaffi framleiðir og selur matarminjagripi eins og Klausturfíflahunang, hvannarsultu, hrútaberjahlaup og hundasúrupestó. ( Sjá vörur).
Gamla borðstofan í Gunnarshúsi og sólstofan undir svölunum taka um 50 manns í sæti en á góðviðrisdögum er hægt að setjast út á suðurstétt og sleikja sólskinið með heimagerðum ís.
Matseðlar
Hádegishlaðborð, ferming, brúðkaup eða bara sunnudagsrúntur á kaffihlaðborð?
Hádegismatseðill
Veitingar | Verð |
---|---|
Hádegishlaðborð | 4.490 |
Hádegishlaðborð - börn 6-12 ára | 2.245 |
Súpa dagsins (Gluten free og Vegan möguleikar) | 1.990 |
Okkar rómaða sjávarréttasúpa | 2.490 |
Hreindýrabaka (Gluten free) | 4.490 |
Grillaðar lambalundir | 4.890 |
Rauðrófubuff (Vegan) | 2.790 |
Ostabaka (Vegetarian) | 2.390 |
Kaffiseðill
Veitingar | Verð |
---|---|
Kaffihlaðborð | 2.990 |
Kaffihlaðborð - börn 6-12 ára | 1.495 |
Hrútaberjaskyrterta | 1.290 |
Rabarbarabaka | 1.290 |
Krækiberjabrúnka (Gluten Free, vegan) | 1.290 |
Súkkulaðiterta (hægt að fá vegan) | 1.290 |
Döðlubomba m/karamellu | 1.290 |
Vaffla með sultu og rjóma | 1.290 |
Kleinur - 4 stk. | 690 |
Flatbrauð m/hangikjöti | 990 |
Ostagljáð snittubrauð m/áleggi | 1.690 |
Heimalagaður bláberjaís | 1.090 |
Skúffukaka | 990 |
Pizzasnúðar | 890 |
Vörur
Klausturkaffi á aðild að Austfirskum krásum og hefur frá árinu 2009 framleitt og selt ýmsar vörur.
Vörurnar fást í Húsi handanna á Egilsstöðum, en einnig er hægt að panta beint frá Klausturkaffi með því að senda tölvupóst.
Hrútaberjahlaup
kr. 700
Fíflahunang
kr. 700
Rifsberjahlaup
kr. 690
Hvannarsulta
kr. 700
Piparkökur
kr. 700
Uppáhaldsuppskriftir Elísabetar
kr. 2.000