Gunnarsstofnun rekur gestaíbúð fyrir lista- og fræðimenn að Skriðuklaustri. Íbúðin kallast Klaustrið og hefur tekið á móti góðum gestum allt frá 1989 sem hafa dvalið þar og unnið að völdum verkefnum. Íbúðin er tveggja herbergja (svefnherbergi, stofa, eldhús og bað) á efri hæð Gunnarshúss.
Rithöfundar, fræðimenn, tónskáld, myndlistarmenn, tónlistarmenn, dansarar og aðrir listamenn geta sótt um 3-6 vikna dvöl í gestaíbúðinni. Dvölinni fylgja engir styrkir en ekki er greitt fyrir afnot af íbúðinni (utan staðfestingargjalds) og gestum séð fyrir kaupstaðarferðum.
Verkefni sem varða Gunnar Gunnarsson, ævi hans eða verk, njóta forgangs við úthlutun auk verkefna sem tengjast Austurlandi eða austfirskum fræðum.
Að öðru leyti er úthlutað á grundvelli verkefna og ferilskrár.
Umsóknarfrestur hvert ár er 15. júní fyrir komandi almanaksár. Stjórn Gunnarsstofnunar fjallar um umsóknir á haustfundi og liggur úthlutun fyrir í september.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublað hér og skal það sent ásamt fylgigögnum til stofnunarinnar í tölvupósti eða venjulegum pósti.
Samþykkt af stjórn Gunnarsstofnunar 7. september 2017.
Vinsamlega sendið okkur tölvupóst með umsókn um dvöl í Gestaíbúð Gunnarsstofnunar á netfang stofnunarinnar:
+354 471 2990