About Gunnarsstofnun
Gunnarsstofnun varð til árið 1997 með reglum sem menntamálaráðherra, Björn Bjarnason, setti um stofnunina. Samkvæmt þeim reglum, með áorðnum breytingum, starfaði Gunnarsstofnun allt til ársloka 2007 og tók mið af gjafabréfi Gunnars Gunnarssonar skálds og Franziscu Gunnarsson, konu hans, frá 11. desember 1948. Frá 1. janúar 2008 hefur stofnunin verið rekin sem sjálfeignarstofnun með skipulagsskrá.
Árið 1999 var gert samkomulag milli menntamálaráðuneytis og landbúnaðarráðuneytis um að Gunnarsstofnun hefði til umráða og umsjónar á Skriðuklaustri í Fljótsdal, Gunnarshús, Skriðu sem forstöðumannsbústað, og 15 ha lóð umhverfis húsin. Þar hefur stofnunin aðsetur sitt þó að starfsvettvangur hennar sé Austurland og í raun heimurinn allur.
Á Skriðuklaustri rekur Gunnarsstofnun menningar- og fræðasetur með lifandi menningarstarfsemi árið um kring, sýningum, tónleikum, fyrirlestrum og öðrum viðburðum.
Stefna Gunnarsstofnunar fyrir árin 2018-2027 er aðgengileg hér.
Stjórn
Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar er þannig skipuð frá og með 1. janúar 2021 til 31. desember 2023:
- Gunnar Björn Gunnarsson, skipaður af menntamálaráðneyti, varamaður hans er Gunnar Martin Úlfsson.
- Sigríður Sigmundsdóttir, skipuð af Austurbrú ses., varamaður hennar er Gauti Jóhannesson.
- Steinunn Kristjánsdóttir, skipuð af Háskóla Íslands, varamaður hennar er Rúnar Helgi Vignisson.
- Annette Lassen skipuð af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, varamaður hennar er Halldóra Jónsdóttir.
- Margrét Tryggvadóttir skipuð af Rithöfundasambandi Íslands, varamaður hennar er Sindri Freysson.
Starfsmenn
Forstöðumaður
Skúli Björn Gunnarsson er fæddur austur á Fljótsdalshéraði 24. mars 1970. Hann er íslenskufræðingur að mennt og með MA-gráðu í Hagnýtri menningarmiðlun frá HÍ. Hann starfaði við útgáfu, kynningu, auglýsingar, margmiðlun, vefsíðugerð og almannatengsl áður en hann tók við starfi forstöðumanns Gunnarsstofnunar 1. október 1999.
Netfang Skúla Björns er skuli [hja] skriduklaustur.is
Aðrir starfsmenn
Ólöf Sæunn Valgarðsdóttir (Skotta) er mannfræðingur sem starfað hefur hjá Gunnarsstofnun með hléum frá 2001. Hún er staðarhaldari og hefur umsjón með starfsemi á staðnum auk annarra verkefna.
Netfang Ólafar Sæunnar (Skottu) er skotta [hja] skriduklaustur.is