Stefnumót um stafræna miðlun og varðveislu menningararfs verður haldið í Reykjavík 16. júní 2022, í Veröld - húsi Vigdísar, Háskóla Íslands. Á stefnumótinu verða flutt erindi um stafrænan menningararf og framtíð arfleifðarinnar í sýndarheimum rædd í málstofum af um 30 innlendum og erlendum fyrirlesurum. Jafnframt mun gestum gefast tækifæri til að kynna sér um 20 tæknilausnir og afrakstur verkefna á þessu sviði, sem og nýsköpun eins og leiki, sýndarveruleika og upplifun byggða á menningararfinum. 

Stefnumótið er lokaviðburður í verkefninu PHIVE (Promoting and preserving heritage in virtual environments) sem er samstarfsverkefni stutt af Norðurslóðaáætlun ESB og leitt af Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri. Viðburðinum verður streymt og hægt verður að taka þátt gegnum netið. Skráning á stefnumótið fer fram á Eventbrite og er sætafjöldi takmarkaður. Hægt er að sækja heildardagskrána hér.

Sjá nánar um ráðstefnuna og PHIVE verkefnið hér:

https://northernheritage.org/final-conference-program/

Ráðstefnan er skipulögð af eftirtöldum íslenskum aðilum:

isl samstarf

Hafðu samband

  • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Komdu í heimsókn

Fylgdu okkur